Stjarnan 3 - 2 FH
1-0 Birnir Snær Ingason ('25 )
1-1 Kjartan Kári Halldórsson ('42 , víti)
1-2 Tómas Orri Róbertsson ('60 )
2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('65 )
3-2 Andri Rúnar Bjarnason ('86 )
Lestu um leikinn
1-0 Birnir Snær Ingason ('25 )
1-1 Kjartan Kári Halldórsson ('42 , víti)
1-2 Tómas Orri Róbertsson ('60 )
2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('65 )
3-2 Andri Rúnar Bjarnason ('86 )
Lestu um leikinn
Stjarnan vann erkifjendur sína í FH, 3-2, í 2. umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. Andri Rúnar Bjarnason gerði sigurmarkið undir lok leiks eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Stjörnumenn voru með völdin stærstan hluta fyrri hálfleiksins og áttu orrahríð að marki FH-inga. Emil Atlason fékk tvö færi á fyrstu tíu mínútunum en Jökull Andrésson sá við honum í bæði skiptin.
Örvar Eggertsson fékk besta færið á 12. mínútu. Guðmundur Baldvin Nökkvason átti frábæra sendingu í gegn og á Örvar sem var fljótari en allir og náði að vippa boltanum yfir Jökul í markinu en boltinn rétt framhjá.
Jökull var aftur kallaður til á 21. mínútu. FH-ingar hreinsuðu burt hornspyrnu Stjörnumanna og alla leið niður á Árna Snæ Ólafsson sem kom með langan á Emil sem náði skoti en Jökull varði vel.
Eftir öll þessi færi Stjörnumanna hlaut markið að koma, en það gerðist fjórum mínútum síðar. Benedikt Warén færði boltann hægra megin á Örvar sem gaf fastan bolta á Birni Snæ Ingason sem kláraði færið vel.
Stjarnan missti lykilmann sinn, Emil, af velli á 36. mínútu og inn kom Andri Rúnar og átti hann eftir að skipta sköpum fyrir sína menn.
Á lokamínútum fyrri hálfleiks fengu FH-ingar vítaspyrnu sem Stjörnumenn geta verið svekktir með. Örvar og Ísak reyndu báðir að henda sér fyrir lausan bolta og Örvar fyrstur í boltann en fór síðan í Ísak. Strangur dómur en vítaspyrna dæmd og skoraði Kjartan Kári Halldórsson úr vítinu.
Staðan í hálfleik 1-1, en það voru FH-ingar sem tóku forystuna þegar fimmtán mínútur voru liðnar af þeim síðari er Tómas Orri Róbertsson fékk að keyra fram völlinn, lét síðan vaða fyrir utan teig í stöng og inn. Stórkostlegt skot og Hafnfirðingar óvænt komnir í forystu.
Stjörnumenn voru ekki lengi að svara. Fimm mínútum síðar jafnaði Guðmundur Baldvin af stuttu færi. Jóhann Árni Gunnarsson átti fyrirgjöf á Benedikt sem skallaði í átt að marki. Jökull varði skallann en þó ekki lengra en út á Guðmund sem gat ekki annað en sett boltann í markið.
Leikurinn róaðist töluvert eftir jöfnunarmarkið en það voru Stjörnumenn sem voru líklegri til að ná inn sigurmarki frekar en FH-ingar.
Þeir náðu því þegar fimm mínútur voru eftir og var það eftir stórglæsilegan undirbúning frá Samúel Kára Friðjónsson sem átti þessa geggjuðu sendingu inn á teiginn á Andra Rúnar Bjarnason sem var kominn í góða stöðu inn á teignum og setti boltann í markið.
Annar sigur Stjörnunnar sem er með fullt hús eins og KR á meðan FH er aðeins með eitt stig.
Besta deildin
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 4 | +4 | 6 |
| 2. Stjarnan | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 4 | +2 | 6 |
| 3. Fram | 2 | 1 | 0 | 1 | 6 - 4 | +2 | 4 |
| 4. Víkingur R. | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 1 | +2 | 4 |
| 5. Breiðablik | 2 | 1 | 0 | 1 | 2 - 1 | +1 | 4 |
| 6. Valur | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 7. Þór | 2 | 1 | 1 | 0 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 8. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 9. ÍA | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 10. ÍBV | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 - 3 | -1 | 1 |
| 11. Keflavík | 2 | 0 | 2 | 0 | 3 - 6 | -3 | 0 |
| 12. KA | 2 | 0 | 2 | 0 | 2 - 5 | -3 | 0 |



