Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   fös 17. apríl 2026 21:21
Hafþór Örn Laursen
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Haraldur Freyr, þjálfari Keflavíkur
Haraldur Freyr, þjálfari Keflavíkur
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Keflavík tapaði 3-1 gegn sterku liði Fram í kvöld. Fréttaritari náði á tal við Harald Frey, þjálfara Keflavíkur.

Lestu um leikinn.

Lestu um leikinn: Fram 3 -  1 Keflavík

„Ég er svekktur með frammistöðuna og úrslitin. Mér fannst við byrja leikinn nokkuð vel en við vorum klaufar, það var barnalegur varnarleikur í fyrsta markinu og við gefum þeim svolítið boltann.''

Varnarleikur Keflavíkur var ekki upp á marga fiska á köflum eins og Haraldur snerti á fyrr í viðtalinu,

„Við þurfum klárlega að laga varnarleikinn hjá okkur, við erum búnir að spila tvo leiki í þessari deild og fá á okkur 6 mörk samtals. Það segir sig sjálft að það gengur ekki upp og við þurfum að byrja á því að geta varið markið okkar.''

Það vakti einhverja athygli á því að Þorlákur Breki Baxter og Stefan Ljubicic voru ekki með í hóp í dag.

„Stefan meiðisti lítillega á móti KR og var ekki nógu góður til að spila í dag og Breki meiðist á æfingu fyrir nokkrum dögum.''

Keflavík eru nýbúnir að festa kaup á Agli Val Karlssyni, unglingalandsliðsmann, frá Breiðablik.

„Egill er ungur og efnilegur leikmaður sem við náðum á þriggja ára samning og við erum mjög spenntir yfir honum.

Eins og stendur eru Keflvíkingar neðstir í Bestu Deildinni með 0 stig eftir tvær umferðir. Þeir fá síðan Breiðablik í heimsókn á miðvikudaginn komandi.

Viðtalið má horfa á í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
banner