„Við lögðum upp leikin bara að vinna annan og fyrsta bolta og mér fannst við gera það stærsta hluta leiksins og ég held að það er það sem skilar okkur sigurinn í dag.'' segir Birna Jóhannsdóttir, leikmaður Stjörnuna, eftir 2-0 sigur gegn Val í 2. umferð Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 4 Valur
Birna var spurð hvað henni fannst um frammistöðu liðsins í dag.
„Mér fannst hún bara mjög góð stærsta hluta leiksins, mér fannst aðeins í seinni hálfleik þar sem þær ná smá yfirhöndinni. En við náðum svo að setja þetta mark í lokinn,''
Birna skoraði fyrsta mark leiksins eftir hamagang í teignum sem kom eftir hornspyrnu.
„Frammistaðan var nokkuð góð. Maður tekur alltaf einn leik í einu or reynir að gera allt sem maður getur fyrir liðið. Hvort sem það er að skora eða leggja upp eða bara vinna skítavinnuna,''
Stjarnan fóru svekktt heim í síðustu umferð eftir tap gegn Víkingi eftir mjög jafnan leik, en svöruðu því með sigri í dag.
„Já, þetta var einmitt svekkjandi tap gegn Víking og okkur fannst við allavega ekki eiga skilið að tapa, en kannski heldur ekki að vinna. Við komum einmitt inn í þennan leik og ætluðum bara að halda hreinu og taka þessi þrjú stig,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
























