Betis 1 - 4 Chelsea
1-0 Abde Ezzalzouli ('9 )
1-1 Enzo Fernandez ('65 )
1-2 Nicolas Jackson ('70 )
1-3 Jadon Sancho ('83 )
1-4 Moises Caicedo ('90 )
Chelsea er Sambandsdeildarmeistari eftir sigur á Real Betis í úrslitum í kvöld.
1-0 Abde Ezzalzouli ('9 )
1-1 Enzo Fernandez ('65 )
1-2 Nicolas Jackson ('70 )
1-3 Jadon Sancho ('83 )
1-4 Moises Caicedo ('90 )
Chelsea er Sambandsdeildarmeistari eftir sigur á Real Betis í úrslitum í kvöld.
Leikurinn byrjaði vel fyrir Real Betis þar sem Abde Elzzalzouli skoraði eftir aðeins níu mínútna leik með skoti úr teignum í fjærhornið.
Chelsea var mun meira með boltann í fyrri hálfleiknum en það var lítil ógn frá Lundúnaliðinu.
Enzo Maresca tók Malo Gusto af velli strax í hálfleik og Reece James kom inn á í hans stað. Chelsea vaknaði í seinni hálfleik og náði að jafna metin eftir klukkutíma leik.
Það var Enzo Fernandez sem skoraði markið með skalla eftir fyrirgjöf frá Cole Palmer. Fimm mínútum síðar skoraði Nicolas Jackson meeð skalla oog aftur var það Palmer sem átti stoðsendinguna.
Jackson þurfti að fara af velli vegna meiðsla þegar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma og Kieran Dewsbury-Hall kom inn á í hans stað. Dewsbury-Hall lét til sín taka stuttu síðar þegar hann kom boltanum á annan varamann, Jadon Sancho, sem fór langt með að tryggja Chelsea sigurinn.
Það var síðan Moises Caicedo sem innsiglaði sigur Chelsea þegar hann skoraði með góðu skoti fyrir utan teiginn.
Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn í 23 ár sem lið frá Spáni tapar úrslitaleik í Evrópukeppni
Athugasemdir