

HK jafnaði ÍBV að stigum á topp Lengjudeildarinnar í kvöld með 1-0 sigri á Keflavík suður með sjó en Eyjaliðið heldur toppsætinu á markatölu. Pétur Rögnvaldsson þjálfari HK var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum sagði um leikinn.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 1 HK
„Í seinni hálfleik fengum við þó nokkuð mikið af færum og ég held að Loma (McNeese) hafi einu sinni skotið boltanum í slánna inní markinu sem var ótrúlegt augnablik. Keflavík átti svo sín færi í fyrri og seinni hálfleik en karakter og sterkt að ná inn þessu marki.“
Lið HK fór illa með mörg dauðafæri í leiknum í dag, bæði skaut Loma McNeese í þverslá af afar stuttu færi og þá varði Annar Arnarsdóttir margoft frá framherjum HK í stöðunni ein gegn einni í leiknum. Var Pétur farinn að efast að markið kæmi?
„Já, þetta var orðið það mikið af færum að ég hélt að þetta myndi ekki detta. Svo kemur Valgerður upp kantinn og inn á teiginn og setur boltann yfir hana. Ég held að þetta hafi verið svona tuttugasta besta staðan á vellinum sem við fengum til að skora mark.“
Sagði Pétur sem fór svo fögrum orðum um Önnu markvörð Keflavíkur.
„Hún varði nokkrum sinnum alveg fáránlega vel. Át okkur í einn gegn einum stöðum allavega þrisvar fjórum sinnum og hún á bara mikið hrós skilið þessi efnilega markmaður.“
Líkt og áður segir er HK að jafna ÍBV að stigum á toppi deildarinnar en liðinu var fyrir mót spáð um miðja deild. Er liðið að spila yfir eigin væntingum?
„Nei við erum ekki að því. En þetta er leikur fimm af átján. Þannig að við erum bara að halda áfram að safna stigum í pokann góða og skoðum það seinna í sumar hvaða baráttu við verðum í.“
Undir lok leiks þurfti Emilía Lind Atladóttir að yfirgefa völlinn vegna meiðsla en hún hafði verið afar spræk í leiknum. Emilía var borinn af velli og um hennar ástand sagði Pétur.
„Hún fer bara í sjúkrabíl á börum héðan í burtu og var með meðvitund. Mér skildist á mínum konum sem að fóru að hugsa um sína konu að hún hafi verið komin til meðvitundar en verið rugluð.“
Sagði Pétur en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan
Athugasemdir