Chelsea er búið að snúa blaðinu við og er komið með forystuna gegn Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar. Chelsea var í stökustu vandræðum í fyrri hálfleik og Real Betis var með verðskuldaða forystu þegar flautað var til hálfleiks.
Það var Abde Elzzalzouli sem skoraði mark Betis snemma í fyrri hálfleik eftir sendingu frá Isco.
Það er allt annað að sjá til Chelsea liðsins í seinni hálfleik. Liðið hefur náð að skapa ser hættuleg færi og Reece James hefur komið vel inn í þetta en hann kom inn á fyrir Malo Gusto í hálfleik.
Enzo Fernandez skoraði eftir rúmlega klukkutíma leik með skalla eftir fyrirgjöf frá Cole Palmer. Fimm mínútum síðar skoraði Nicolas Jackson með skalla aftur eftir sendingu frá Palmer.
Sjáðu markið hjá Fernandez
Sjáðu markið hjá Jackson
Athugasemdir