„Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað aftur og vinn vonandi annan titil," sagði Pablo Fornals, leikmaður Real Betis, en hann vann Sambandsdeildina með West Ham árið 2023.
Fornals getur orðið fyrsti leikmaðurinn til að vinna keppnina tvisvar og Real Betis getur unnið sinn fyrsta Evróputitil. Fornals ræddi við Michail Antonio, fyrrum liðsfélaga sinn hjá West Ham, sem er sérfræðingur hjá TNT Sport á leiknum í kvöld.
„Þú veist að það er ekki auðvelt að vera sá eini sem nær einhverju góðu, það yrði ótrúlegt. Flest allt sem hefur gerst á þessu tímabili er í fyrsta sinn hjá okkur, komast í undanúrslit og úrslit í Evrópukeppni. Við reynum að binda enda á þann tíma," sagði Fornals.
Antonio sagði að David Moyes, þáverandi stjóri West Ham, hafi sýnt leikmönnum liðsins myndband af fjölskyldum þeirra fyrir úrslitaleikinn sem þeir unnu gegn Fiorentina árið 2023.
„Mér fannst eitthvað svoleiðis vanta núna. Þeir hengdu upp fána landa okkar hjá West Ham. Þetta var öðruvísi hjá stjóranum núna en svona fer hann að þessu," sagði Fornals.
Athugasemdir