Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid heldur í vonina um að fá Wirtz
Mynd: EPA
Real Madrid heldur í vonina að næla í Florian Wirtz frá Leverkusen samkvæmt hemildum spænska miðilsins AS.

Real Madrid veit að Liverpool leiðir kapphlaupið eftir að Simon Rolfes, íþróttastjóri hjá Leverkusen, staðfesti að það væri áhugi frá Liverpool.

Spænska félagið hefur hins vegar ekki kastað inn hvíta handklæðinu og vonast til að stela Wirtz undan nefinu á Liverpool.

Það ýtir undir vonir Real Madrid að Xabi Alonso, fyrrum stjóri Leverkusen, er orðinn stjóri spænska liðsins.
Athugasemdir
banner