Chelsea getur orðið fyrsta liðið til að vinna allar Evrópukeppninnar ef liðið vinnur Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Chelsea lauk tímabilinu í úrvalsdeildinni með 1-0 sigri gegn Nottingham Forest. Þrátt fyrir nauman sigur var Enzo Maresca mjög ánægður.
Chelsea lauk tímabilinu í úrvalsdeildinni með 1-0 sigri gegn Nottingham Forest. Þrátt fyrir nauman sigur var Enzo Maresca mjög ánægður.
„Við erum byrjaðir að vinna leiki á ljótan hátt. Það er eitthvað sem við vorum í vandræðum með í upphafi tímabilsins," sagði Maresca.
Margir ungir leikmenn hafa fengið tækifæri í Sambandsdeildinni en Maresca treystir á marga reynslumkla leikmenn í kvöld.
„Ég sagði við strákana að allir eigi skilið að spila þennan leik. Við fórum til sex eða sjö mismunandi landa á tímabilinu og þeir eiga það allir skilið. Þetta var erfitt val en vonandi rétt," sagði Maresca.
Athugasemdir