Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 21:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Gríðarlega óvænt úrslit á Álftanesi - Sjáðu mörkin
Öruggt hjá Haukum og Njarðvík
Arian Ari Morina
Arian Ari Morina
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Haukar, Njarðvík og Álftanes komust örugglega áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins í kvöld.

Haukar fengu KFR í heimsókn. Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði tvö mörk snemma leiks og kom Haukum í góða stöðu. Það var síðan Ólafur Darri Sigurjónsson sem innsiglaði sigur Hauka.

Álftanes, sem leikur í 4. deild í sumar, gerði sér lítið fyrir og fór illa með Kára, sem leikur í 2. deild í sumar. Arian Ari Morina fór hamförum og skoraði tvennu og lagði upp tvö mörk til viðbótar.

Þá vann Njarðvík öruggan sigur á Hvíta riddarnum en Njarðvíkingar voru með 5-0 forystu í hálfleik.

Njarðvík mætir Tindastóli í 32-liða úrslitum, Haukar mæta ÍA og Álftanes mætir Gróttu.

Njarðvík 5 - 2 Hvíti riddarinn
1-0 Valdimar Jóhannsson ('16 )
2-0 Guðmundur Magnússon ('21)
3-0 Bragi Karl Bjarkason ('25 )
4-0 Leandro Fernandes ('37 )
5-0 Arnleifur Hjörleifsson ('40 )
5-1 Óðinn Breki Þorvaldsson ('68 )
5-2 Hrafn Elísberg Hjartarson ('89 )

Álftanes 5 - 1 Kári
1-0 Bessi Thor Jónsson ('14 )
2-0 Magnús Ársælsson ('49 )
3-0 Arian Ari Morina ('55 )
3-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('63 )
4-1 Arian Ari Morina ('71 )
5-1 Patrik Thor Pétursson ('90 )

Haukar 3 - 0 KFR
1-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('1 )
2-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('19 )
3-0 Ólafur Darri Sigurjónsson ('61 )

Njarðvík - Hvíti Riddarinn


Álftanes - Kári

Slapp
Athugasemdir
banner
banner