Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
   mið 30. maí 2018 11:02
Elvar Geir Magnússon
Aron Einar kominn til Íslands: Líður þannig að ég nái Argentínuleiknum
Icelandair
Aron er bjartsýnn.  Hér ræðir hann við Friðrik Ellert Jónsson sjúkraþjálfara og Sveinbjörn Brandsson lækni á æfingunni í dag.
Aron er bjartsýnn. Hér ræðir hann við Friðrik Ellert Jónsson sjúkraþjálfara og Sveinbjörn Brandsson lækni á æfingunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði er mættur til Íslands í undirbúning fyrir HM í Rússlandi. Hann er nýkominn frá Katar þar sem hann var í góðum höndum vegna meiðsla sinna.

Aron ræddi við íslenska fjölmiðla um stöðu mála á Laugardalsvelli í dag og má sjá viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

„Staðan er ágæt og ég er ánægður með hvar ég er í dag. Það hefur verið mikil vinna í endurhæfingunni. Ég þarf að vinna mig hægt í það að komast í boltann aftur, ég fór aðeins á gras í Katar í endurhæfingunni og mér leið vel. Ég verð rólegur í dag en met með læknum og sjúkraþjálfurum hvort ég geri eitthvað á morgun," segir Aron.

Framundan eru vináttulandsleikir gegn Noregi og Gana. Ólíklegt er að Aron komi við sögu í þeim leikjum, allavega er hægt að útiloka þátttöku hans gegn Noregi. Mun hann ná leiknum gegn Argentínu 16. júní?

„Mér líður þannig. Ég er ánægður með hvernig endurhæfingin hefur gengið og ég er á pláni. Ég er allavega mjög jákvæður og sáttur við standið á mér."

Í viðtalinu tjáir hann sig einnig um undirbúninginn á Íslandi, samningastöðuna í Cardiff og Lars Lagerback.

Lykildagar Íslands í júní:
LEIKUR 2. júní Noregur (Laugardalsvöllur) - Vináttuleikur
LEIKUR 7. júní Gana (Laugardalsvöllur) - Vináttuleikur
9. júní Flogið til Rússlands (Gelendzhik)
LEIKUR 16. júní Argentína (Moskva) - HM
LEIKUR 22. júní Nígería (Volgograd) - HM
LEIKUR 26. júní Króatía (Rostov) - HM
Slapp
banner
banner