Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
Elmar Kári: Búinn að bíða eftir þessu
Maggi: Sýnir trúna sem við erum með
Vuk: Er kannski nær markinu og með meira sjálfstraust
Jón Þór: Stóru vandamálin liggja ekki þar
Rúnar: Hefur fengið að blómstra í þessu hlutverki
Heimir: Þá fer þetta að verða eins og umræðan var árið 2022
Elmar Atli: Maður var búinn að bíða eftir þessu
Auður: Gaman að ná að vinna Þrótt sem voru taplausar í deildinni
Haddi: Gjörsamlega óþolandi hvað sumir mega öskra inn á völlinn
Óli Kristjáns: Ábyrgðin á mér og stelpunum
„Við komumst út úr þessu það er klárt mál"
Davíð Smári: Skjaldarmerki þess sem Vestri stendur fyrir
Óskar Smári: Ótrúlega stoltur af liðinu mínu í dag
Murielle Tiernan: Eina sem þú þarft að gera er að setja hann inn
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Tufa um rauða spjaldið: Okk­ur á bekkn­um fannst hann hlaupa á Bjarna og henda sér niður
Jökull: Hefði viljað sjá okkur vera meira 'ruthless' í byrjun leiks
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
   fim 31. ágúst 2023 20:31
Kári Snorrason
Úlfur Arnar: Láta kné fylgja kviði
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir fékk topplið Lengjudeildarinnar Aftureldingu í heimsókn fyrr í dag. Afturelding komst yfir snemma leiks en Fjölni tókst að snúa við leiknum, lokatölur 4-2. Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Fjölnis kom í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 4 -  2 Afturelding

„Ég er mjög ánægður með þennan sigur og karakterinn í strákunum. Við gefum þeim mjög ódýrt fyrsta mark, feilsending og þeir refsa okkur. Sterkt að koma svona til baka. Þeir minnka muninn í 3-2 og við sýnum mikla seiglu að standa það áhlaup af okkur í lokin og gulltryggjum þetta svo í lokin"

Fyrstu tvö mörk Fjölnis komu með 67 sekúndna millibili

„Það sem kom okkur aðeins á óvart í uppleggi Aftureldingar að þeir biðu eftir okkur. Ég átti von á að þeir kæmu á okkur en þeir biðu eftir okkur og við bjuggumst ekki við því. Það tók smá tíma að fara spila meira í gegnum þá og koma boltanum inn í teig.
Um leið og við náum frábærri sendingu í teig þá erum við með Bjarna Gunnarsson og hann skorar mörk þegar boltinn kemur.
Svo bara láta kné fylgja kviði bara strax. Það er högg að fá á sig mark og oft er móment til að láta kné fylgja kviði og við gerðum það svo sannarlega."


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Athugasemdir
banner