Malick Fofana, tvítugur vængmaður Lyon, er eftirsóttur af enskum félögu en Chelsea hefur sett sig í samband við franska félagið.
Franski miðillinn L'Equipe greinir frá þessu en þar kemur einnig fram að Nottingham Forest hafi sýnt honum áhuga.
Engar viðræður eru formlega hafnar milli Lyon og Chelsea.
Fofana er Belgi en Lyon keypti hann frá Gent í janúar í fyrra og borgaði rúmlega 20 milljónir evra fyrir hann. Hann hefur leikið 62 leiki fyrir Lyon, skorað 15 mörk og lagt upp 5.
Athugasemdir