Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd eina félagið sem hafi rætt um Ekitike
Hugo Ekitike.
Hugo Ekitike.
Mynd: EPA
Hugo Ekitike, sóknarmaður Eintracht Frankfurt, er eftirsóttur og hefur hann til dæmis verið orðaður við Englandsmeistara Liverpool. Bild í Þýskalandi segir samt sem áður að Manchester United sé eina félagið sem hafi rætt við Frankfurt um hann.

Það vill svo til að Markus Krösche, yfirmaður fótboltamála hjá Frankfurt, er góður vinur Christopher Vivell, sem er í stóru hlutverki í leikmannamálum Man Utd.

Ekitike er opinn fyrir því að ganga í raðir Man Utd en bróðir hans og umboðsmaður hafa rætt við United.

Frankfurt er talið vilja um 85 milljónir punda fyrir Ekitike sem á fjögur ár eftir af samningnum sínum.

Ekitike, sem er 22 ára gamall, skoraði 22 mörk og gaf 12 stoðsendingar í öllum keppnum með Frankfurt á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner