Úkraínski miðvörðurinn Ilya Zabarnyi hefur samþykkt fimm ára samningstilboð Evrópumeistara Paris Saint-Germain en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Zabarnyi fór á kostum í vörn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Hann og Dean Huijsen mynduðu öflugt miðvarðarpar er liðið hafnaði í 9. sæti deildarinnar, en eftir tímabilið gekk Huijsen í raðir Real Madrid og er nú útlit fyrir að Zabarnyi sé að semja við Evrópumeistara PSG.
Romano segir að varnarmaðurinn hafi náð munnlegu samkomulagi um fimm ára samning við PSG, en franska félagið mun nú ræða við Bournemouth um kaupverð.
Úkraínumaðurinn hefur spilað 86 leiki og skorað 1 mark frá því hann kom frá Dynamo Kiev árið 2023 og hefur spilað 49 A-landsleiki með Úkraínu.
Athugasemdir