Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
   lau 14. júní 2025 19:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Völsungur og Keflavík gerðu jafntefli á Húsavík í dag. Fótbolti.net ræddi við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Völsungs, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Völsungur 1 -  1 Keflavík

„Fyrst að fyrri hálfleikurinn þróast þannig að við erum að leiða eftir 45 mínútur og fljótlega fá þeir rautt. Að vera 1-0 yfir og manni fleiri þá er ég svekktur að hafa ekki klárað þetta," sagði Alli Jói.

„Ég er svekktur með sjálfan mig að hafa ekki brugðist meira við í þeirri stöðu og breytt því aðeins sem við vorum að gera. Við hefðum átt að vera aðeins rólegri á boltanum og búa til yfirtölur og ég hefði átt að koma þeim skilaboðum betur inn á völlinn."

Alli var stoltur af sínum mönnum.

„Ég er hrikalega ánægður að eftir að hafa komist yfir og orðið manni fleiri, lent í því að fá á sig víti og rautt spjald, Völsungsliðið hafi reynt að vinna leikinn í 94 mínútur," sagði Alli Jói.
Athugasemdir
banner