Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Galatasaray reynir við Gündogan
Gündogan hefur spilað 354 keppnisleiki með Man City og unnið ógrynni titla.
Gündogan hefur spilað 354 keppnisleiki með Man City og unnið ógrynni titla.
Mynd: EPA
Galatasaray hefur mikinn áhuga á að kaupa Ilkay Gündogan frá Manchester City en leikmaðurinn er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum.

Sky í Þýskalandi greinir frá þessu en tekur fram að engar viðræður séu farnar af stað. Gündogan sé einbeittur að HM félagsliða með Man City þessa dagana.

Talið er að Man City sé tilbúið til að selja Gündogan fyrir rétt verð en óljóst er hvort leikmaðurinn hafi áhuga á að skipta yfir til sterkasta liðs tyrknesku deildarinnar.

Gündogan verður 35 ára gamall í október en var mikið notaður af Pep Guardiola á nýliðinni leiktíð, þar sem hann tók þátt í 50 keppnisleikjum.

Hjá Galatasaray myndi Gündogan verða liðsfélagi leikmanna á borð við Leroy Sané, Davinson Sánchez, Mario Lemina, Lucas Torreira, Álvaro Morata og Mauro Icardi.

Galatasaray er staðráðið í að styrkja hópinn sinn í sumar en stórveldið er einnig orðað við Hakan Calhanoglu og Granit Xhaka meðal annars.
Athugasemdir
banner