Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Fer í læknisskoðun hjá Man City á morgun
Mynd: Rosenborg
Norska undrabarnið Sverre Nypan fer í læknisskoðun hjá enska stórveldinu Manchester City á morgun.

Nypan er átján ára miðjumaður sem virtist vera á leið til Aston Villa í sumar en endar hjá Man City sem borgar 15 milljónir evra til að kaupa hann frá Rosenborg.

Nypan gengur því til liðs við City í næstu viku og verður þar liðsfélagi samlanda sinna Oscar Bobb og Erling Haaland.

Bobb, sem verður 22 ára í júlí, kom aðeins við sögu í fjórum leikjum með City á síðustu leiktíð.

Líklegt er að Nypan verði lánaður burt á komandi leiktíð.

   12.06.2025 14:00
Man City nær samkomulagi við Rosenborg - Sá dýrasti í sögunni

Athugasemdir
banner
banner