Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 18:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Bayern með langstærsta sigurinn í sögunni
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bayern 10 - 0 Auckland City
1-0 Kingsley Coman ('6 )
2-0 Sacha Boey ('18 )
3-0 Michael Olise ('20 )
4-0 Kingsley Coman ('21 )
5-0 Michael Olise ('45 )
6-0 Thomas Muller ('45 )
7-0 Jamal Musiala ('67 )
8-0 Jamal Musiala ('73 , víti)
9-0 Jamal Musiala ('84 )
10-0 Thomas Muller ('89 )

Bayern mætti Auckland City frá Nýja-Sjálandi í fyrsta leik liðanna á HM félagsliða þetta árið. Auckland City hefur oftast allra tekið þátt í keppninni.

Það vekur athygli að leikmenn liðsins einbeita sér ekki algjörlega að fótboltanum því þeir eru með vinnu fyrir utan fótboltann.

Það sást greinilega í leiknum þar sem Bayern rúllaði yfir Auckland.

Jamal Musiala skoraði meðal annars þrennu og Thomas Muller og Michael Olise tvennu hvor í 10-0 sigri. Þetta er stærsti sigur í sögu keppninnar en Al-Hilal vann Al-Jazira 6-1 árið 2022.

Harry Kane spilaði klukkutíma en komst ekki á blað.
Athugasemdir
banner
banner