Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 21:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild kvenna: Öruggur sigur ÍBV í toppslag
Kvenaboltinn
Olga Sevcova
Olga Sevcova
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 2 - 5 ÍBV
0-1 Allison Patricia Clark ('27 )
0-2 Allison Grace Lowrey ('39 )
0-3 Olga Sevcova ('55 )
0-4 Allison Patricia Clark ('58 )
1-4 Natalie Sarah Wilson ('64 )
2-4 María Lena Ásgeirsdóttir ('90 )
2-5 Milena Mihaela Patru ('90 )

HK fékk ÍBV í heimsókn í toppslag í Lengjudeild kvenna í kvöld.

ÍBV var með tveggja marka forystu en nöfnurnar Allison Clark og Allison Lowrey skoruðu mörk Eyjakvenna.

Olga Sevcova bætti þriðja markinu við eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Allison Clark bætti síðan öðru marki sínu og fjórða marki ÍBV við stuttu síðar.

Natalie Sarah Wilson náði að klóra í bakkann fyrir HK og María Lena Ásgeirsdóttir bætti öðru markinu við seint í uppbótatíma. Milena Mihaela Patru innsiglaði síðan siigur ÍBV í kjölfarið.

ÍBV er á toppnum með 16 stig, jafn mörg stig og Grindavík/Njarðvík og stigi á undan HK sem er í 3. sæti.
Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍBV 7 5 1 1 30 - 6 +24 16
2.    Grindavík/Njarðvík 7 5 1 1 16 - 9 +7 16
3.    HK 7 5 0 2 18 - 12 +6 15
4.    Grótta 7 4 0 3 18 - 14 +4 12
5.    KR 7 3 1 3 16 - 19 -3 10
6.    Keflavík 7 2 3 2 11 - 9 +2 9
7.    Haukar 7 2 1 4 7 - 17 -10 7
8.    ÍA 7 1 3 3 8 - 13 -5 6
9.    Fylkir 7 2 0 5 9 - 16 -7 6
10.    Afturelding 7 1 0 6 3 - 21 -18 3
Athugasemdir
banner