Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 09:59
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Heitt þjálfarasæti í Árbænum - „Ógeðslega daprir“
Lengjudeildin
Árni Freyr Guðnason.
Árni Freyr Guðnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik Fylkis og Grindavíkur.
Úr leik Fylkis og Grindavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylki var spáð efsta sæti Lengjudeildarinnar í spá þjálfara og fyrirliða fyrir mót en Árbæingar hafa hinsvegar ekki náð sér á strik og eru í níunda sæti að loknum átta umferðum.

Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur um Lengjudeildina, sagði í útvarpsþættinum Fótbolti.net að þjálfarasæti Árna Freys Guðnasonar sé orðið heitt.

„Það er mikið áfall fyrir Fylkismenn að ná ekki að klára þennan leik á heimavelli. Fylkismenn hafa verið ógeðslega daprir og eru bara með einn sigurleik," sagði Baldvin í þættinum eftir 1-1 jafntefli Fylkis gegn Grindavík á heimavelli.

Árni tók við Fylki eftir síðasta tímabil en hann hafði gert góða hluti með ÍR-inga. Eyþór Aron Wöhler var sóttur til að styrkja sóknarlínuna en hann er enn ekki kominn með mark og byrjaði á bekknum gegn Grindavík.

Árni var spurður út í sína stöðu eftir leikinn gegn Grindavík.

„Ég get ekki haft áhyggjur af einhverju sem ég hef enga stjórn á. Það er bara stjórnin sem ákveður það. Ég tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við og gera þetta vel en ég er ekkert að ljúga af þér að þetta hefur alveg komið inn í hausinn á mér en við þurfum bara að halda áfram," sagði Árni.
Útvarpsþátturinn - Í návígi við Gulla Jóns og Bestu
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 8 5 3 0 12 - 4 +8 18
2.    Njarðvík 8 4 4 0 20 - 8 +12 16
3.    HK 8 4 2 2 15 - 8 +7 14
4.    Þróttur R. 8 4 2 2 15 - 11 +4 14
5.    Keflavík 7 3 2 2 15 - 9 +6 11
6.    Grindavík 7 3 2 2 20 - 15 +5 11
7.    Þór 8 3 2 3 18 - 17 +1 11
8.    Völsungur 8 3 1 4 11 - 17 -6 10
9.    Fylkir 8 1 4 3 9 - 12 -3 7
10.    Leiknir R. 8 2 1 5 9 - 21 -12 7
11.    Selfoss 8 2 0 6 6 - 17 -11 6
12.    Fjölnir 8 0 3 5 7 - 18 -11 3
Athugasemdir
banner
banner