Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
Hemmi Hreiðars: Rosalegur karakterssigur
Aðalsteinn Jóhann: Ég hef ekki hugmynd um það
Gylfi Þór: Vonandi verður þetta jákvætt í lok tímabilsins
Lárus Orri: Frekar fúllt að labba héðan í burtu með ekkert stig
Eyjamenn stöðvuðu blæðinguna - „Maður er búinn að bíða eftir því"
Sölvi Geir: Ætla að vona að þetta sé að einhverju leyti vellinum að kenna
Haraldur Einar: Vaknaði ferskur og írskir dagar
Davíð Smári ósáttur með stóra ákvörðun - „Ofboðslega sorglegt"
Rúnar Kristins: Ég skaut fastar en hann bæði með hægri og vinstri
Valsmenn fengu góðan stuðning á Ísafirði - „Það skiptir máli"
Freysi Sig: Hinn Hornfirski Messi
Jóhann Birnir: Þurfum að vera með fókus á það sem við erum að gera
Árni Freyr: Vorum litlir í okkur og náðum ekki að höndla svona barning
Bergvin stóð við stóru orðin - „Gaman að hafa smá banter í þessari deild"
Gunnar Már: Það var eins og við vorum manni færri
Gústi Gylfa: Rautt spjald snýst ekkert um agavandamál
Farið á þrjú stórmót og þetta er besta umhverfið
„Hvað gerðist ekki í þeim leik?"
Ræða forsetans gladdi - „Við sögðum allt sem lá á hjartanu"
Sveindís: Veit ekki hvort þeir hafi séð þetta fyrir sér fyrir nokkrum árum
banner
   sun 15. júní 2025 18:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haddi: Gjörsamlega óþolandi hvað sumir mega öskra inn á völlinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir fjóra leiki í röð án taps tapaði KA gegn Vestra á Ísafirði í dag. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, eftir leikinn.

„Mér fannst við ekki tilbúnir í baráttuna og seinni boltann. Seinni hálfleikur var virkilega góður, lentir undir og þrýstum á þá allan leikinn og komust í virkilega margar stöður en hefði viljað skapa fleiri dauðafæri. Við komumst vissulega í dauðafæri á síðustu sekúndunni en sköllum yfir tómt markið," sagði Haddi.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  0 KA

Haddi var ekki ánægður með markið sem liðið fékk á sig.

„Við missum boltann á miðjunni. Mér finnst það vera brot. Það voru fullt af atriðum sem hann gat dæmt eða ekki. Hinn bekkurinn öskraði úr sér lungun allan tímann og ég held því miður að það hafi haft áhrif á dómarann. Það er gjörsamlega óþolandi hvað sumir mega öskra inn á völlinn yfir atriðum sem voru augljóslega rétt dæmd en það er samt allt brjálað," sagði Haddi.

Ásgeir Sigurgeirsson þurfti að fara af velli eftir að hafa fengið tvö höfuðhögg með stuttu millibili og hann var færður upp í sjúkrabíl.

„Það er skallað tvisvar í hausinn á honum og hann blóðgast. Hann er með hausverk en ég veit ekki hver staðan er á honum. Það er sama með Jóan, hann brýtur á þeim og dæmt brot. Þá er hann laminn í andlitið og hann fær blóðnasir. Hvorug þessara tilvika eru spjöld en svo erum við spjaldaðir fyrir að brjóta á þeim langt frá markinu," sagði Haddi.
Athugasemdir