Fylkismenn voru nálægt því að skora sigurmark í uppbótartíma gegn Grindavík þegar liðin áttust við í Lengjudeildinni á föstudag en Dennis Nieblas bjargaði á ævintýralegan hátt á marklínu.
„Eyþór Aron Wöhler er neitað um mark! Eyþór á skalla sem er á leiðinni inn en Grindvíkingar ná niður á línu og koma boltanum burt. Eyþór vildi eðlilega meina að boltinn væri allur inni en dómararnir ekki sammála," skrifaði Stefán Marteinn, fréttamaður Fótbolta.net, í textalýsingu frá leiknum.
Hafliði Breiðfjörð var með myndavélina í Árbænum og miðað við myndir hans þá var boltinn ekki kominn allur inn og aðstoðardómarinn Arnþór Helgi Gíslason gerði því rétt.
Leikurinn endaði með jafntefli 1-1 en björgunina má sjá hér að neðan.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 1 Grindavík
Athugasemdir