Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 16:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ljóst hvenær Wirtz fer í læknisskoðun
Florian Wirtz.
Florian Wirtz.
Mynd: EPA
Florian Wirtz mun fara í læknisskoðun hjá Liverpool næstkomandi föstudag og ganga frá skiptum sínum til félagsins.

Wirtz er að klára fríið sitt áður en hann kemur til Englands síðar í þessari viku.

Liverpool hefur náð samkomulagi við Bayer Leverkusen um 116,5 milljón punda kaupverð. Það gerir Wirtz að dýrasta leikmanni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Hún mun fá á milli 10,2 og 12,7 milljónir punda í laun, en það fer eftir því hvort hann nái ákveðnum bónusgreiðslum.

Wirtz var mjög eftirsóttur í þessum félagaskiptaglugga en hann valdi að ganga í raðir Liverpool þar sem hann var spenntur fyrir taktísu plani Arne Slot.
Athugasemdir
banner
banner