
Man Utd reynir að styrkja sóknina, Arsenal ætlar að leggja fram annað tilboð í Viktor Gyökeres og Hakan Calhanoglu gæti verið á förum frá Inter. Þetta og margir fleiri áhugaverðir molar í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Manchester United ætlar að horfa til Antoine Semenyo (25), framherja Bournemouth eða Eberechi Eze (26) hjá Crystal Palace ef félaginu tekst ekki að fá Bryan Mbeumo (25), leikmann Brentford. (ESPN)
Arsenal ætlar að leggja fram annað tilboð í Viktor Gyökeres (27), framherja Sporting í Portúgal. Atlético Madríd hefur einnig áhuga, en leikmaðurinn hefur sjálfur hafnað því að ganga í raðir Man Utd. (Record)
AC Milan hefur sett sig í samband við Valencia vegna miðjumannsins Javi Guerra (22). (Calciomercato)
Inter er reiðubúið að hlusta á tilboð í tyrkneska landsliðsmanninn Hakan Calhanoglu (31). Galatasaray hefur lýst yfir áhuga. (Gazetta)
Southampton er að íhuga að leggja fram tilboð í Damion Downs (20), framherja Köln. (Sky)
Keith Andrews, sem sér um föstu leikatriðin hjá Brentford, kemur til greina til að taka við af Thomas Frank. (Talksport)
Spænski miðjumaðurinn Fer Lopez (21) hefur samþykkt að ganga í raðir Wolves frá Celta Vigo, en félögin eiga enn eftir að komast að samkomulagi um kaupverð. (Diario AS)
Bayer Leverkusen vill kaupa hollenska framherjann Justin Kluivert (22) frá Bournemouth eftir að félagið selur Florian Wirtz til Liverpool. Leverkusen hefur þegar sett sig í samband við Bournemouth. (Mail)
West Ham hefur átt viðræður við Reims um Adama Bojang (21, framherja félagsins. Hamrarnir gætu landað honum fyrir 11 milljónir punda. (Mirror)
Bournemouth hefur náð samkomulagi við Rennes um kaup á franska vinstri bakverðinum Adrien Truffert (23), sem mun leyfa Liverpool að ganga frá kaupum á MIlos Kerkez. (ESPN)
Wolves mun þurfa að berjast um að halda portúgalska stjóranum Vitor Pereira áfram, en Benfica ætlar að reyna að fá hann aftur til heimalandsins. (Sun)
Athugasemdir