Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 18:26
Kári Snorrason
Byrjunarlið Víkings og KR: Ekroth snýr aftur
Ekroth snýr aftur eftir meiðsli.
Ekroth snýr aftur eftir meiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexander Helgi meiddist fyrir rúmum mánuði en byrjar í dag.
Alexander Helgi meiddist fyrir rúmum mánuði en byrjar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur og KR mætast í lokaleik elleftu umferðar Bestu-deildar karla á Víkingsvelli í kvöld. Leikurinn hefst 19:15, en búið er að tilkynna byrjunarliðin.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 KR

Sölvi Geir Ottesen gerir fjórar breytingar frá tapi gegn erkifjendunum í Breiðablik í síðustu viku.

Oliver Ekroth kemur inn í vörnina og fær fyrirliðabandið, þeir Karl Friðleifur Gunnarsson, Matthías Vilhjálmsson og Viktor Örlygur Andrason bætast einnig við í byrjunarliðið.

Út fara þeir Davíð Örn Atlason, Erlingur Agnarsson, Stígur Diljan Þórðarson og Tarik Ibrahimagic, Tarik er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda.

Þá gerir Óskar Hrafn Þorvaldsson tvær breytingar á sínu liði í dag, frá 2-1 sigri gegn Vestra í síðustu umferð.

Alexander Helgi Sigurðarson snýr aftur eftir meiðsli og þá bætist Atli Sigurjónsson einnig nýr inn í byrjunarliðið eftir sterka innkomu gegn Vestra.

Guðmundur Andri Tryggvason tekur sér sæti á bekknum, en Aron Þórður Albertsson er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda.
Byrjunarlið Víkingur R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
15. Róbert Orri Þorkelsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
27. Matthías Vilhjálmsson
32. Gylfi Þór Sigurðsson

Byrjunarlið KR:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f)
16. Matthias Præst
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Atli Sigurjónsson
28. Hjalti Sigurðsson
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 11 7 2 2 22 - 13 +9 23
2.    Breiðablik 11 7 1 3 19 - 16 +3 22
3.    Vestri 11 6 1 4 13 - 7 +6 19
4.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
5.    Stjarnan 11 5 2 4 20 - 20 0 17
6.    Fram 11 5 0 6 18 - 17 +1 15
7.    Afturelding 11 4 2 5 12 - 14 -2 14
8.    ÍBV 11 4 2 5 12 - 17 -5 14
9.    KR 11 3 4 4 30 - 26 +4 13
10.    KA 11 3 3 5 10 - 18 -8 12
11.    FH 11 3 2 6 15 - 16 -1 11
12.    ÍA 11 3 0 8 13 - 28 -15 9
Athugasemdir
banner
banner