
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er líklega á leið frá Bayern München í sumar.
Karólína hefur varið síðustu tveimur tímabilum á láni hjá Bayer Leverkusen og staðið sig vel.
Karólína hefur varið síðustu tveimur tímabilum á láni hjá Bayer Leverkusen og staðið sig vel.
Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, hefur sagt frá því á samfélagsmiðlum að það sé áhugi á henni frá Englandi og Spáni.
„West Ham var til dæmis á eftir henni og svo hefur Brighton verið orðað við hana," sagði Orri í hlaðvarpi á Fótbolta.net á dögunum.
Núna segir hann á samfélagsmiðlinum X að Inter hafi skorist í leikinn og valið sé á milli tveggja félaga núna. „Inter er annað þeirra liða samkvæmt mínum heimildum," segir Orri.
Það væri áhugavert ef Karólína fer í Inter þar sem liðsfélagi hennar í landsliðinu, Cecilía Rán Rúnarsdóttir, virðist vera á leiðinni þangað. Cecilía lék á láni með Inter á síðasta tímabili og var besti markvörðurinn á Ítalíu.
Óvænt ????????????
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) June 16, 2025
Ítalska stórliðið Inter hefur blandað sér í baráttuna um Karólínu Leu Vilhjálmsdóttir.
Karólína hefur haft nokkra möguleika á borðinu en nú standa einungis tvö lið eftir í vali hennar. Inter er annað þeirra liða samkvæmt mínum heimildum. https://t.co/e2B14yCq33 pic.twitter.com/su6UMhEgPK
Athugasemdir