Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verði svipuð ráðning og þegar Thomas Frank var ráðinn
Keith Andrews.
Keith Andrews.
Mynd: EPA
Keith Andrews þykir líklegastur til að taka við Brentford af Thomas Frank sem var ráðinn til Tottenham í síðustu viku.

Andrews er 44 ára gamall og hefur aldrei verið aðalþjálfari áður. Hann lagði skóna á hilluna 2015 eftir flottan feril þar sem hann lék meðal annars 35 landsleiki fyrir Írland.

Eftir að skórnir fóru upp á hillu þá hefur hann verið aðstoðarþjálfari MK Dons, írska landsliðsins og Sheffield United.

Á síðasta tímabili var hann ráðinn í þjálfarateymi Brentford og sá hann meðal annars um föstu leikatriðin. Núna gæti hann fengið stórt gigg.

„Brentford hefur áður ráðið innanbúðar en Thomas Frank var til dæmis aðstoðarþjálfari Dean Smith áður en hann tók svo við liðinu," segir Jamie Weir, fréttamaður Sky Sports og segir hann að Brentford telji Andrews vera með réttu eiginleikana til að taka við liðinu.
Athugasemdir
banner
banner