Aron Jóhannsson var ekki í leikmannahópi Vals í kvöld vegna meiðsla þegar liðið tapaði gegn Stjörnunni í Bestu deildinni.
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var spurður út í fjarveru hans í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var spurður út í fjarveru hans í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 2 Valur
„Það gæti vel verið. Hann lenti í mjög vondri tæklingu á móti Fram en klárar leikinn. Myndatakan segir að hann þarf nokkrar vikur til að jafna sig. Ég vona innilega að þetta verði ekki löng pása en veit ekki hversu löng," sagði Túfa.
Aron hefur komið við sögu í níu leikjum í Bestu deildinni í sumar og skorað eitt mark.
Athugasemdir