Salernitana hefur óskað eftir því að seinni leik liðsins í umspilinu gegn Sampdoria verði frestað eftir að leikmenn og starfsfólk fóru á sjúkrahús vegna matareitrunar.
Liðin tvö eru í umspili um sæti í B-deildinni en Sampdoria vann 2-0 sigur í fyrri leiknum á sunnudag.
Liðin tvö eru í umspili um sæti í B-deildinni en Sampdoria vann 2-0 sigur í fyrri leiknum á sunnudag.
Salernitana hefur formlega óskað eftir frestun eftir að 21 úr ferðahópnum veiktist þegar liðið flaug til baka frá Genúa eftir að hafa tapað fyrri leiknum.
Salernitana stendur frammi fyrir falli í þriðju deild Ítalíu eftir að hafa fallið úr A-deildinni fyrir ári síðan. Margir leikmanna liðsins eru of veikir til að æfa fyrir seinni leikinn á föstudag.
Salernitana hefur einnig kallað eftir rannsókn á orsökum matareitunarinnar.
Liðið átti upphaflega að spila við Frosinone í umspilinu en fjögurra stiga frádráttur Brescia vegna fjárhagsstöðu þýddi að Brescia féllu sjálfkrafa í stað Sampdoria, sem síðan kom í stað Frosinone í umspilinu.
Athugasemdir