Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
HM: Færanýting skóp gæfumuninn fyrir Botafogo
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Botafogo 2 - 1 Seattle Sounders
1-0 Jair ('28)
2-0 Igor Jesus ('44)
2-1 Cristian Roldan ('75)

Botafogo og Seattle Sounders áttust við í fyrstu umferð HM félagsliða í gær og komust Brasilíumennirnir í tveggja marka forystu eftir nokkuð jafnan og tíðindalítinn fyrri hálfleik.

Botafogo var sterkari aðilinn og tók forystuna á 28. mínútu, þegar Jair skoraði eftir stoðsendingu frá Alex Telles, fyrrum bakverði Manchester United.

Igor Jesus tvöfaldaði forystuna skömmu fyrir leikhlé eftir undirbúning frá Vitinho, fyrrum leikmanni Burnley.

Staðan var 2-0 í leikhlé og gerði Seattle tvöfalda skiptingu. Seattle var talsvert sterkari aðilinn í síðari hálfleik og tókst að skapa sér stórhættuleg færi en boltinn rataði ekki í netið.

Varnarleikur Botafogo reyndist nægilega góður til að landa 2-1 sigri eftir að Cristian Roldan minnkaði muninn á 75. mínútu.

Botafogo og Seattle eru í gífurlega erfiðum riðli ásamt PSG og Atlético Madrid.
Athugasemdir
banner