Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Fagmannlegri og þroskaðri en áður - „Spilaði bara NBA 2K og horfði á sjónvarpið“
Ousmane Dembele
Ousmane Dembele
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Dembele þroskaðist mikið eftir dvöl sína hjá Barcelona
Dembele þroskaðist mikið eftir dvöl sína hjá Barcelona
Mynd: EPA
Lionel Messi er besti leikmaður allra tíma að mati Dembele
Lionel Messi er besti leikmaður allra tíma að mati Dembele
Mynd: EPA
Evrópumeistarinn Ousmane Dembele er talinn líklegastur til að hreppa Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu síðar á þessu ári, en hann fór um víðan völl í viðtali við France Football á dögunum.

Frakkinn leiðir baráttuna um Ballon d'Or og er það vel verðskuldað eftir frábært tímabil.

Hann varð deildar- og bikarmeistari með PSG áður en hann skilaði inn stórkostlegri frammistöðu í 5-0 stórsigrinum á Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Dembele segir markmiðið að vinna Ballon d'Or í framtíðinni, en það myndi nægja honum að vera tilnefndur í ár.

„Það er erfitt að segja, en að vinna Ballon d'Or er hið heilaga gral sem fótboltamaður. Þetta er eitthvað sem mann dreymir um frá ungum aldri. Ég man eftir því að hafa horft á Télefoot þegar leikmenn tóku á móti verðlaununum. Það var ótrúlegt og boltinn sjálfur er stórkostlegur.“

„Það er þegar stórsigur fyrir mig að vera talinn með þeim líklegustu og einn daginn vonast ég til að hreppa verðlaunin. Til að byrja með vonast ég til að fá tilnefningu.“

„Síðustu ár hafa verið mér erfið með meiðsli og frammistaðan oft slök, en mér finnst ég hafa sýnt meiri stöðugleika á þessu tímabili, þannig sjáum til hvað gerist. Það væri geggjað að vera á listanum,“
sagði Dembele.

Frakkinn var auðmjúkur í viðtalinu við France Football, en hann segist ekki vita hvort hann sé verðugur sigurvegari í ár.

„Ég veit það ekki. Það eru blaðamennirnir sem velja þetta, en ég spila alltaf sama boltann. Síðan ég var lítill strákur hefur markmiðið alltaf verið að færa fólkinu sem mætir á vellina gleði. Ég elska að rekja boltann, en ég vil líka hjálpa liðinu með því að skora mörk og gefa stoðsendingar. En síðan mega allir hafa sína skoðun og kjósa það sem þeir vilja. Það er frábært ef þú ert hrifinn af Ousmane Dembele, en ef það er ekki staðan þá heldur bara lífið áfram.“

Dembele spilaði með Barcelona frá 2017 til 2023. Oft var hann gagnrýndur fyrir að sýna ekki nægilega mikla fagmennsku og var hann oft meiddur. Frakkinn segist hafa þroskast mikið síðustu ár.

„Ég er aðeins fagmannlegri í dag. Ég sýndi auðvitað fagmennsku fyrir, en núna hef ég bætt í. Þegar ég á frídaga þá vil ég fara í ræktina, ná endurheimt og vinna með sjúkraþjálfurunum en áður fór ég heim, spilaði NBA 2K og horfði á sjónvarpið. Ég var ungur, þannig það er eðlilegt, en þegar allt kemur til alls þá er þetta dýrkeypt og sérstaklega hjá Barcelona. Ég mætti ungur þangað og spilaði frá 20 til 26 ára aldurs þar sem ég glímdi við mörg líkamleg vandamál. Ég lærði margt og það hjálpaði mér, en núna þekki ég líkama minn betur sem er ástæða þess að ég meiðist minna. Ég veit hvenær ég er góður, en veit líka hvenær ég þarf að hægja á mér á æfingum.“

Þakkar hann Luis Enrique sérstaklega sem hefur náð mögnuðum árangri með PSG og tekist að búa til liðsheild.

„Þegar það kemur að þjálfara eins og Luis Enrique þá veistu að ef þú verst ekki þá ertu settur á bekkinn. Það mun einhver taka sæti þitt. Sem framherji þá má ég ekki svindla, heldur leggja mig fram allan leikinn, bæði varnarlega og sóknarlega. Þess vegna varð PSG Evrópumeistari því við vörðumst allir sem einn og sóttum allir sem einn.“

„Hann er stjórinn og það er hann sem tekur ákvarðanirnar. Hann kom með þetta hugarfar til PSG og hefur algerlega rétt fyrir sér og þökk sé honum náði hann að skapa liðsheild. Við erum mun sterkari og hugsum alltaf um liðið fram yfir okkur sjálfa. Þetta er leiðin fram á við ef við viljum vinna mikilvæga titla. Svo er það auðvitað taktíski þátturinn. Hann er frábær þjálfari sem hefur unnið titla með Barcelona og er með sínar hugmyndir hvernig á að spila fótbolta, hvort sem þér líkar vel við þær eða ekki, og mun hann aldrei yfirgefa hugmyndafræði sína.“


Að lokum segir Dembele að Lionel Messi sé besti leikmaður allra tíma og að fyrrum körfuboltamaðurinn Michael Jordan hafi einnig veitt honum mikinn innblástur.

„Ég vissi ekkert um Michael Jordan, en ég sá The Last Dance (Á Netflix) og fannst það ótrúlegir þættir. Að hugsa sér að hann hafi náð að skara fram úr í gegnum kynslóðir og það fyrir komu samfélagsmiðla. Það sem hann gerði með Bulls var stórkostlegt.“

„Ég ólst upp við að horfa á Barcelona þannig auðvitað er það Lionel Messi. Hann er besti leikmaður allra tíma. Þetta er einstakur leikmaður sem ég lít mikið upp til. Ég er ótrúlega ánægður og stoltur að hafa spilað með honum,“
sagði Dembele í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner