Napoli reynir aftur við Garnacho - Arsenal ekki að ná að semja við Sporting um Gyökeres - Kudus í læknisskoðun hjá Spurs
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
„Hætt að borða nammi í Tenerife ferðinni þegar hún var tíu ára"
GunnInga í bláa hafinu: Styðjum liðið okkar í blíðu og stríðu
„Eru geggjaðir karakterar og munu bíta fast frá sér“
Tólfan spáir sigri - „Hef bara séð eina Noregstreyju“
Fékk leyfi til að fljúga beint frá Albaníu til Sviss
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
banner
   sun 15. júní 2025 23:18
Kjartan Leifur Sigurðsson
Maggi: Sýnir trúna sem við erum með
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Frábær liðsheild í dag og við höfðum trú á því sem við vorum að gera. Við lendum undir og svörum því vel. Frábær kvöld hér að Varmá," segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir 4-1 sigur gegn ÍA fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 -  1 ÍA

Afturelding kom til baka og gerði vel eftir að Viktor Jónsson hafði komið Skagamönnum í forystu í fyrri hálfleiknum.

Þetta sýnir trúna sem við erum með, við höfum trú á því sem við erum að gera. Eitt klaufalegt mark sem við fáum á okkur í byrjun en fyrir utan það verjumst við vel og jöfnum verðskuldað. Í seinni hálfleik byrjuðu Skagamenn betur en við stóðum það af okkur."

Elmar Kári Enesson Cogic skoraði tvö fyrstu mörk Aftureldingar og sín fyrstu tvö mörk í sumar.

„Hann er búinn að spila vel. Þetta er eins tómatsósan, stundum stendur sósan á sér og sullar svo út. Hann er búinn að spila frábærlega og það var tímaspursmál hvenær markið kæmi."

Framundan er bikarleikur gegn Fram en þetta er í fyrsta sinn sem að Afturelding fer í 8-liða úrslit bikarsins.

„Við þurfum enn meiri stemningu í stúkuna. Stór dagur og það væri geggjað að fara í undanúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins."
Athugasemdir
banner