Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal hótar að hætta við Gyökeres
Mynd: EPA
Arsenal hefur hótað því að draga sig úr viðræðum við Sporting Lisbon um sænska framherjann Viktor Gyökeres en þetta segir portúgalski miðillinn Record í dag.

Gyökeres fór á kostum með Sporting á tímabilinu og skoraði alls 67 mörk í öllum keppnum, en portúgalska félagið hafði vonast eftir því að hefja verðstríð um leikmanninn.

Arsenal og Manchester United hafa verið í baráttunni um hann, en nú þegar Gyökeres hefur hafnað United hefur Sporting ákveðið að hækka verðmiðann.

Record segir að Arsenal hafi talið að 60 milljónir punda væri nóg til þess að landa Gyökeres, en Sporting hafnaði tilboði sem nam þeim verðmiða. Félagið vill að minnsta kosti 70 milljónir fyrir Svíann.

Samkvæmt miðlinum hefur Arsenal hótað því að draga sig alfarið úr viðræðunum ef Sporting heldur áfram blása upp verðið og mun í staðinn snúa sér að slóvenska framherjanum Benjamin Sesko sem er á mála hjá RB Leipzig.

Arsenal hefur einnig sýnt Ollie Watkins, framherja Aston Villa, áhuga og reyndi félagið að fá hann í janúarglugganum en Villa hafnaði tilboði þeirra sem kom seint í glugganum.
Athugasemdir
banner