Tveimur síðustu leikjum dagsins er lokið í Bestu deild karla þar sem Fram og Afturelding sigruðu heimaleiki í neðri hlutanum.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 FH
Fram 2 - 0 FH
1-0 Vuk Oskar Dimitrijevic ('6)
2-0 Sigurjón Rúnarsson ('77)
Fram tók á móti FH og komst yfir snemma leiks þegar Vuk Oskar Dimitrijevic potaði boltanum inn úr góðu færi eftir laglega fyrirgjöf frá Róberti Haukssyni.
Heimamenn í liði Fram voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en gestirnir frá Hafnarfirði virtust aðeins vera að taka við sér þegar leið á hálfleikinn.
FH byrjaði betur í síðari hálfleik en tókst ekki að skapa sér neitt af viti og tóku heimamenn aftur stjórn á leiknum. Þeir komust nálægt því að tvöfalda forystuna áður en Sigurjón Rúnarsson tókst það á 77. mínútu.
Sigurjón skoraði með því að fylgja eftir aukaspyrnutilraun með marki. Mathias Rosenörn markvörður FH réði illa við aukaspyrnuna og varði boltann beint út í teig þar sem hann datt fyrir Sigurjón.
Kjartan Kári Halldórsson var líflegasti leikmaður FH-inga og átti hann nokkrar tilraunir á lokamínútunum sem báru engan árangur.
Niðurstaðan er verðskuldaður 2-0 sigur Fram sem situr um miðja deild, með 15 stig eftir 11 umferðir. FH er áfram í fallbaráttunni með 11 stig.
Afturelding 4 - 1 ÍA
0-1 Viktor Jónsson ('17)
1-1 Elmar Kári Enesson Cogic ('33)
2-1 Elmar Kári Enesson Cogic ('71)
3-1 Benjamin Stokke ('85, víti)
4-1 Hrannar Snær Magnússon ('90)
Lestu um leikinn
Afturelding tók á sama tíma á móti ÍA og komust gestirnir frá Akranesi yfir í fyrri hálfleik þegar Viktor Jónsson skoraði eftir sendingu frá Gísla Laxdal Unnarssyni. Það vantaði alla ákefð í varnarleik Mosfellinga og tóku Skagamenn forystuna verðskuldað.
ÍA komst nokkrum sinnum nálægt því að tvöfalda forystuna áður en Elmar Kári Enesson Cogic jafnaði metin með stórkostlegu marki. Elmar fékk boltann fyrir utan vítateig og lét vaða á markið með þrumufleyg sem fór alveg út við stöngina, eftir góðan undirbúning frá Axeli Óskari Andréssyni.
Mosfellingar komust vel inn í leikinn og var staðan jöfn í leikhlé en Skagamenn fengu dauðafæri í upphafi síðari hálfleiks. Boltinn rataði þó ekki í netið fyrr en á 71. mínútu þegar Elmar skoraði sitt annað mark til að taka forystuna fyrir heimamenn.
Í þetta skiptið skoraði Elmar heppnismark þar sem skot frá Benjamin Stokke fór af Elmari og breytti þannig um stefnu til að enda í netinu.
Skagamenn fengu tækifæri til að svara fyrir sig sem þeir nýttu ekki og þess í stað skoruðu heimamenn annað mark. Þeir fengu dæmda vítaspyrnu eftir klaufalegan varnarleik Johannes Vall og skoraði Benjamin Stokke örugglega af punktinum.
Hrannar Snær Magnússon gulltryggði svo sigur Mosfellinga á lokamínútunum eftir frábæra stungusendingu frá Benjamin Stokke. Lokatölur urðu því 4-1 þó að leikurinn hafi verið nokkuð jafn en heimamenn nýttu færin sín betur.
Athugasemdir