Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gattuso við það að taka við ítalska landsliðinu
Mynd: EPA
Gennaro Gattuso verður næsti landsliðsþjálfari Ítalíu.

Þessi 47 ára gamli Ítali hefur verið í viðræðum við ítalska sambandið undanfarna daga eftir að Luciano Spalletti var látinn taka pokann sinn.

Gianluigi Buffon leiðir viðræðurnar en hann staðfesti það á EM U21, sem fram fer í Slóvakíu þessa dagana, að Gattuso verði næsti landsliðsþjálfari.

„Við erum bara að bíða eftir smáaatriðum. Forsetinn og sambandið hafa verið mjög upptekin. Ég tel að á endaanum höfum við tekið bestu ákvörðunina," sagði Buffon.
Athugasemdir
banner
banner