Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, vakti athygli á gengi liðsins á gervigrasi í viðtali eftir tapið gegn Fram í gærkvöldi.
FH hefur fengið öll ellefu stigin sín í ár í grasleikjum. Liðið hefur unnið tvo heimaleiki á Kaplakrikavelli og gert tvö jafntefli. Einu stigin á útivelli komu á Akranesi, á ELKEM vellinum.
FH hefur fengið öll ellefu stigin sín í ár í grasleikjum. Liðið hefur unnið tvo heimaleiki á Kaplakrikavelli og gert tvö jafntefli. Einu stigin á útivelli komu á Akranesi, á ELKEM vellinum.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 FH
Síðasta stig FH á gervigrasi kom 15. september í fyrra, í 22. umferð síðasta Íslandsmóts. Það stig kom á Lambhagavellinum. Síðasti sigur á gervigrasi kom í 20. umferð þegar FH lagði lið Fylkis að velli 25. ágúst í Árbænum, fyrir rétt tæpum tíu mánuðum síðan. Heilt yfir var síðasta tímabil FH gott á útivelli, eftir 22 leiki var liðið þriðja besta útilið deildarinnar, en sótti svo ekki stig á útivelli í lokahlutanum.
2023 vann FH liðið einungis tvo leiki á gervigrasi, báða gegn Breiðabliki í septembermánuði.
Eins og Heimir nefndi í gær þá gekk mjög illa tímabilið 2022 en þá tók FH ekki stig á gervigrasi allt mótið.
„Það er alltaf áhyggjuefni að við skorum ekki en aðaláhyggjuefnið er það að við erum búnir að spila sjö útileiki og sex af þeim á gervigrasi og búnir að tapa þeim öllum. Ég held örugglega öllum bara tiltölulega sannfærandi og þá fer þetta að verða eins og umræðan var 2022, þar sem að FH-liðið gat ekki spilað á gervigrasi, af því að við erum á grasi. Við þurfum að breyta þessu strax," sagði Heimir við Fótbolta.net eftir leikinn.
FH verður fljótlega annað af tveimur liðum Bestu deildarinnar sem spilar heimaleiki sína á grasi. ÍBV er á leiðinni aftur á Hásteinsvöll þar sem búið er að leggja gervigras. Hitt grasliðið er ÍA.
Athugasemdir