Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Man City á leið til Leeds
Mynd: EPA
Leeds United er að ganga frá fyrstu skiptum sumarsins en þýski sóknarmaðurinn Lukas Nmecha er að ganga í raðir félagsins á frjálsri sölu frá Wolfsburg.

Nmecha er 26 ára gamall og uppalinn hjá Manchester City, en hann yfirgaf félagið árið 2021 eftir fjórtán ára dvöl.

Hann spilaði alls þrjá leiki með aðalliðinu en náði sér aldrei á skrið og var lánaður fjórum sinnum frá félaginu áður en hann gekk í raðir Wolfsburg.

Blaðamaðurinn Ben Jacobs segir Nmecha nú vera að halda aftur til Englands, en hann er að ganga frá samkomulagi við nýliða Leeds United í úrvalsdeildinni.

Samningur Nmecha rennur út um mánaðamótin og kemur hann því á frjálsri sölu.

Nmecha á 7 A-landsleiki með Þýskalandi, en hann skipti um landslið árið 2019 eftir að hafa leikið fjölmarga leiki með yngri landsliðum Englands.

Sóknarmaðurinn fæddist í Þýskalandi, en flutti ungur að árum til til Englands. Yngri bróðir hans, Felix, er á mála hjá Borussia Dortmund og á einnig leiki fyrir A-landslið Þýskalands.
Athugasemdir
banner