Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
Jóhann Birnir: Þurfum að vera með fókus á það sem við erum að gera
Árni Freyr: Vorum litlir í okkur og náðum ekki að höndla svona barning
Bergvin stóð við stóru orðin - „Gaman að hafa smá banter í þessari deild"
Gunnar Már: Það var eins og við vorum manni færri
Gústi Gylfa: Rautt spjald snýst ekkert um agavandamál
Farið á þrjú stórmót og þetta er besta umhverfið
„Hvað gerðist ekki í þeim leik?"
Ræða forsetans gladdi - „Við sögðum allt sem lá á hjartanu"
Sveindís: Veit ekki hvort þeir hafi séð þetta fyrir sér fyrir nokkrum árum
Bjarni Jó: Sagði að nú vilja Gummi Tóta, Sævar Gísla og allir koma
Haraldur Freyr: Réðum öllu á vellinum
Hrannar Snær: Mjög sáttur með mína frammistöðu það sem af er
Dóri Árna: Slakasti hálfleikurinn í sumar
Maggi Már: Bara einn staður sem þeir eiga að vera á og það er hérna í 270
Siggi Höskulds: Þetta á að skila sigri alveg sama á hvaða velli
Venni: Þetta er algjört lúxusvandamál sem ég glími við
Tómas Bjarki: Þetta er alveg kúnst
Halli Hróðmars: Leikplanið fór út um gluggann snemma í dag
Gunnar Heiðar: Þegar lestin er farin af stað er helvíti erfitt að stoppa hana
Jakob Gunnar: Einhver skrítnasta skottækni sem ég hef séð
   lau 14. júní 2025 23:42
Anton Freyr Jónsson
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður helvíti vel. Mér fannst þetta nokkuð góð frammistaða að mörgu leyti. Byrjuðum leikinn ógeðslega vel og þeir ná svo að vinna sig aðeins inn í hann aftur en svona heilt yfir fannst mér við sterkari aðilinn og sýna mjög góða frammistöðu." sagði Guðmundur Kristjánsson fyrirliði Stjörnunnar eftir 3-2 sigurinn á Val í Bestu deild karla.


Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  2 Valur

„Mér finnst þeir ekki vera skapa sér einhver færi, kannski er það vitleysa í mér og hlutdrægur en það var allaveganna svona tilfinningin."

Guðmundur Kristjánsson spilaði í hægri bakverðinum hjá Stjörnunni í dag og var mjög góður og átti góða kafla sérstaklega í fyrri hálfleik. 

Leikurinn í kvöld fór fram á skemmtilegum tíma en það er ekki algengt að leikir í Bestu deildinni fari fram á Laugardagskvöldi. Áhorfendur fengu svo sannarlega mikið fyrir peninginn.

„Gerist það eitthvað betra en að mæta í Garðabæinn, stemmingu og á Laugardagskvöldi og svo getur fólk farið beint á djammið með þrjú stig í vasanum eftir á og er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa það."


Athugasemdir
banner