Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 17:15
Brynjar Ingi Erluson
Kallaði Liverpool „kæra vini“ og ætlar nú að sækja Konate frítt
Ibrahima Konate
Ibrahima Konate
Mynd: EPA
Florentino Perez ætlar að stinga vini sína í bakið
Florentino Perez ætlar að stinga vini sína í bakið
Mynd: EPA
Florentino Perez, forseti Real Madrid á Spáni, hefur nú sett á fullt aðgerð að sækja franska varnarmanninn Ibrahima Konate frá Liverpool á frjálsri sölu á næsta ári.

Madrídingar fengu Trent Alexander-Arnold frá Liverpool á dögunum, sem neitaði að skrifa undir nýjan samning við uppeldisfélagið og fór fyrir litlar 10 milljónir punda til Spánar.

Real Madrid hefði fengið Trent frítt ef það hefði beðið til mánaðamóta, en neyddist til að greiða fyrir hann til að fá hann í tæka tíð fyrir HM félagsliða.

Marca greinir nú frá því að Real Madrid sé byrjað að vinna í því að sannfæra Konate um að koma til félagsins frítt á næsta ári þegar samningur hans rennur út.

Liverpool hefur verið í viðræðum við Konate um nýjan samning, en ekkert samkomulag hefur náðst til þessa.

Konate hefur spilað mikilvæga rullu í vörninni með Virgil van Dijk síðustu ár og er með bestu miðvörðum heims um þessar mundir.

Á dögunum, þegar Trent var kynntur fyrir stuðningsmönnum Real Madrid, sagði Perez orðrétt: „Við eigum í mjög góðu sambandi við Liverpool. Þeir eru kærir vinir okkar.“ Sérstakur vinskapur ef vinskap má kalla.
Athugasemdir
banner