Atletico Madrid er í leit að miðverði en Diego Simeone, stjóri liðsins, var spurður út í Cristian Romero, leikmann Tottenham, eftir 4-0 tap liðsins gegn PSG á HM félagsliða í gær.
„Vil ég fá Romero? Augljóslega. Hann er frábær leikmaður," sagði Simeone.
Romero á tvö ár eftir af samningi sínum hjá Tottenham en hann tjáði sig um möguleikann að spila á Spáni í spænskum sjónvarpsþætti.
„Ég vil gjarnan spila í La Liga. Það fer eftir ýmsu. Við sjáum til eftir tímabilið. Sannleikurinn er sá að ég hef ekki rætt við umboðsmanninn en ég er opinn fyrir öllu," sagði Romero.
Athugasemdir