Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
banner
   sun 15. júní 2025 12:55
Brynjar Ingi Erluson
Fer Albert til Roma?
Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er orðaður við ítalska stórliðið AS Roma í Corriere dello Sport í dag.

Albert, sem var á láni hjá Fiorentina frá Genoa á tímabilinu, greindi frá því í viðtali við Fótbolta.net í landsleikjaglugganum að hann fengi að vita framtíð sína 15. júní og er sá dagur runnin upp.

Samkvæmt Corriere dello Sport virðist það ólíklegt að Fiorentina geri skipti Alberts varanleg og er Roma tilbúið að stökkva á tækifærið og landa honum.

Albert, sem fagnar 28 ára afmæli sínu í dag, spilaði 33 leiki með Fiorentina á tímabilinu og skoraði 8 mörk ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar.

Fiorentina greiddi 8 milljónir evra fyrir lánsdvölina með möguleika á að gera skiptin varanleg fyrir 17 milljónir til viðbótar. Eins og staðan er núna hafa engar beinar viðræður átt sér stað milli Genoa og Fiorentina.

Corriere dello Sport segir að Roma vilji því endilega fá Albert á láni út tímabilið og senda annan leikmann til Genoa í staðinn til að lækka kostnaðinn.

Félagið gæti fórnað Eldor Shomurodov, sem hefur verið á mála hjá félaginu frá 2021.
Athugasemdir