Birkir Þorsteinsson kom í gær inn á í sínum fyrsta leik með meistaraflokki Breiðabliks. Hann er fæddur árið 2009 og kom inn á í stöðunni 0-2 fyrir Breiðablik gegn ÍBV þegar skammt var til leiksloka.
Í dag tilkynnti Breiðablik að Birkir væri búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið. Hann er U16 landsliðsmaður, skoraði eitt mark og bar fyrirliðabandið hjá U16 á æfingamóti í Svíþjóð í síðasta mánuði.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Breiðablik
Fótbolti.net ræddi við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, um Birki í dag.
„Hann er gríðarlega efnilegur, er ennþá í þriðja flokki og hefur æft svolítið með okkur - verið í kringum okkur. Hann er algjör lykilmaður í sterkum 2. flokki hjá okkur og hluti af ofboðslega sterkum 2009 árgangi í Breiðabliki. Vonandi er hann fyrsti af mörgum sem fara að gera sig gildandi á næstu árum. Hann er mjög efnilegur og góður leikmaður, framtíðin er algjörlega hans. Hann er með mjög gott hugarfar, duglegur og frábær í fótbolta. Við erum mjög spenntir fyrir honum og vonandi sjáum við meira af honum í sumar," segir Dóri.
Athugasemdir