Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 16:15
Brynjar Ingi Erluson
Goðsögn Barcelona segir Portúgal líklegast til að vinna HM
Puyol segir Ronaldo og félaga líklegasta til að vinna HM
Puyol segir Ronaldo og félaga líklegasta til að vinna HM
Mynd: EPA
Carles Puyol spáir Messi einnig góðu gengi á HM
Carles Puyol spáir Messi einnig góðu gengi á HM
Mynd: EPA
Barcelona-goðsögnin Carles Puyol telur portúgalska landsliðið líklegast til að vinna heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári.

Puyol, sem vann EM tvisvar og HM einu sinni með Spánverjum, var í viðtali í sjónvarpsþættinum Faitelson sin censura, en þar var hann fenginn til að spá fyrir um HM.

Hann telur Portúgal vera með hættulegasta liðið og segir það líklegast til að vinna HM í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar.

„Já, þeir eru líklegastir. Þeir eru með ótrúlega gott landslið og leikmenn í mikilvægum liðum sem eru að vinna marga titla. Þetta er baráttumikið lið, með góðan þjálfara og tel ég þá vera með líklegustu liðunum. Það er enn ár í þetta og margt sem getur gerst eins og meiðsli, leikjaálag og annað, en í dag tel ég þetta vera ótrúlega hættulegt lið,“ sagði Puyol.

Spánverjinn talaði einnig um mikilvægi Cristiano Ronaldo fyrir landsliðið.

„Hann hugsar vel um sig og lifir fyrir fótbolta. Tölurnar tala sínu máli. Ég held að hann sé með 20 mörk í síðustu 25 leikjum og það er alltaf mikilvægt að hafa mann eins og hann í liðinu sem getur lagt sitt af mörkum,“ sagði Puyol sem spáir Lionel Messi, fyrrum liðsfélaga sínum hjá Barcelona, einnig góðu gengi á mótinu.

„Þetta verður í síðasta sinn sem Cristiano og Messi spila á HM og það er blessun að hafa deilt búningsklefa með Lionel Messi, sem fyrir mér, er besti leikmaður allra tíma. Ég vona að honum gangi allt í haginn á HM.“

„Cristiano er líka gott fordæmi fyrir yngri kynslóðirnar og verður erfitt að finna tvo leikmenn í þessum gæðaflokki, leikmenn sem hafa verið upp á sitt besta í mörg ár,“
sagði Puyol.
Athugasemdir
banner
banner