Rúnar Kristinsson þjálfari KR var að vonum ósáttur með 1-1 jafntefli sinna manna gegn Grindavík í Vesturbænum í dag, er liðin mættust í Pepsi deildinni. Hann var þó nokkuð sáttur við spilamennskuna.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Grindavík
„Eins og leikurinn spilaðist erum við náttúrulega ósáttir. Mér fannst við vera mun betra liðið og skapa fleiri færi, en við nýttum þau illa. Þeir fengu fullt af færum líka reyndar, en mér fannst við vera betri. Það er sárt að klára þetta ekki, sérstaklega þegar við vorum komnir í 1-0,“ sagði Rúnar við Fótbolta.net.
Óli Baldur Bjarnason jafnaði metin fyrir Grindvíkinga á 79. mínútu með glæsilegri hjólhestaspyrnu og viðurkennir Rúnar að það hafi verið einkar flott mark.
„Það er nánast ekkert hægt að gera við þessu, stórglæsilegt mark, og svona hlutir breyta leikjum. Við höfðum varist ágætlega í síðari hálfleik eftir að við höfðum komist yfir. Við ætluðum aðeins að drepa leikinn og reyna svo að koma öðru marki á þá, en þeir fluttu sig framar og sköpuðu ágætis sénsa og jöfnuðu þennan leik.“
Rúnar gat þó tekið það jákvætt úr kvöldinu að ÍBV tapaði 3-2 gegn Stjörnunni og endurheimtu KR-ingar því toppsætið, þar sem þeir sitja með betri markatölu en Eyjamenn og eiga auk þess leik til góða.
„Við fengum stig og Vestmannaeyingar ekkert, og það telur náttúrulega allt saman. Við erum sáttir að hafa ekki misst þá lengra fram fyrir okkur, í staðinn erum við aftur komnir á toppinn og þar viljum við vera. En það er hörkuleikur (gegn ÍBV) á sunnudaginn.“
Rúnar segist ekki vera viss um að Skúli Jón Friðgeirsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson verði tilbúnir í þann leik í Eyjum.
„Það er alveg óvíst með það, við gátum ekki tekið neina sénsa með þá í dag. Við munum skoða það á morgun og laugardaginn og sjá hvernig þeir koma eftir þá daga.“
Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni í myndbandinu hér að ofan.






















