banner
   lau 03. nóvember 2012 10:23
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: KR.is 
Rhys Weston til liðs í Malasíu
Rhys Weston í leik með KR í sumar.
Rhys Weston í leik með KR í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Miðvörðurinn Rhys Weston sem lék í hjarta varnar KR í sumar er genginn til liðs við félag í Malasíu.

Þetta kemur fram á vef KR en Weston gekk til liðs við Sabah FA frá Malasíu.

Weston hefur leitað að nýju félagi frá því hann yfirgaf KR í lok ágúst. Hann æfði um tíma með Barnet, sem leikur í neðstu deild á England.

Sabah er frá samnefndu héraði á eyjunni Borneó sem er hluti af Malasíu. Félagið féll úr úrvalsdeildinni í fyrra. Leiktíðin í Malasíu hefst í janúar og lýkur upp úr miðjum júlí.

Weston lék 15 leiki með KR í deild og bikar í sumar áður en félagið náði samkomulagi um að hann myndi hætta júlí.
Slapp
banner
banner
banner