Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skrifaði í gær undir tilskipun um að reisa skyldi gríðarlega langan vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Þá dregur hann úr styrkjum til borga sem aðhafast ekkert vegna ólöglegra innflytjenda.
Veggurinn umtalaði var eitt helsta kosningamál Trumps í kosningabaráttunni.
Viðbrögðin frá Mexíkó hafa ekki látið að sér standa og ákvað fyrirliði fótboltalandsliðs Mexíkó, Rafael Marquez sem er fyrrum leikmaður Barcelona, að blanda sér í umræðuna á Twitter.
„Enginn veggur stöðvar okkur ef við höfum trú á okkur sjálfum," skrifaði Marquez og lét fylgja með glæsilegt aukaspyrnumark frá sér, þar sem hann skýtur boltanum yfir varnarvegginn.
Þýska félagið Borussia Dortmund kom einnig með skemmtilega færslu á Twitter. Þar birta þeir mynd af sínum dyggustu stuðningsmönnum í stúkunni en þeir kallast „Guli veggurinn". Við myndina stendur að þetta sé eini veggurinn sem félagið trúir á.
Þess má geta að 8. febrúar mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik við Mexíkó en leikið verður í Las Vegas í Bandaríkjunum.
No hay #muro capaz de detenernos si creemos en nosotros mismos. #4ctitud. pic.twitter.com/gMZPMj1m1G
— Rafa Marquez (@RafaMarquezMX) January 25, 2017
The only #wall we believe in. 💛 pic.twitter.com/nIL4ws0UY1
— Borussia Dortmund (@BVB) January 26, 2017
Athugasemdir


