Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fös 27. febrúar 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Moyes: Gæti mögulega verið valinn í landsliðið
Mynd: EPA
James Garner hefur verið í stóru hlutverki hjá Everton á þessu tímabili. Hann kom til félagsins sumarið 2022 frá Manchester United.

Garner er í grunninn miðjumaður, er 24 ára og á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Englands. Á þessu tímabili hefur Garner þurft að leysa af í hægri bakverði.

David Moyes, stjóri Everton, er ánægður með sinn mann og segir að hann sé að nálgast það að vera spila nægilega vel til að koma til greina í enska landsliðið.

„Mér finnst James Garner hafa spilað mjög vel á þessu tímabili. Hann er í grunninn miðjumaður, en hann getur spilað í nokkrum stöðum."

„Við höfum þurft að spila honum í hægri bakverði nokkrum sinnum því okkur finnst hann eins góður og aðrir í þeirri stöðu. Á miðjunni hefur hann verið frábær."

„Ég er á því að hann sé að spila á næstum því landsliðs-getustigi núna - hann gæti mögulega verið valinn,"
segir Moyes.

Framundan hjá Everton er útileikur gegn Newcastle á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner