Enska úrvalsdeildin vinnur í átt að því að stofna eigin streymisveitu og er framtíðaráætlun hennar að veitan komi í stað þess að sjónvarpsréttindin séu seld til sjónvarpsstöðva.
Þar með hyggst deildin selja útsendingar sínar beint til fólks heima í stofu í stað þess að það fari í gegnum millilið.
Þar með hyggst deildin selja útsendingar sínar beint til fólks heima í stofu í stað þess að það fari í gegnum millilið.
Enskir fjölmiðlar kallar streymisveituna 'Premflix' og verður hún fyrst opnuð í Singapúr. Á veitunni verða allir 380 leikir deildarinnar í beinni auk umfjöllunarþátta og aukaefnis.
Stjórnendur ensku úrvalsdeildarinnar vonast til þess að veitunni verði vel tekið í Singapúr og það verði aðeins fyrsta skrefið í átt að því að sami háttur verði tekinn í fleiri löndum.
„Þetta verður í fyrsta sinn sem enska úrvalsdeildin mun hafa sína eigin sjónvarpsáskrifendur. Við erum að byggja upp viðskiptahugmynd og við viljum læra, sjá hvernig þessi útfærsla myndi virka um allan heim," segir Richard Masters, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir



