Oumar Diouck, markahæsti leikmaður Njarðvíkur á síðasta tímabili, meiddist illa á hné í leik gegn KA í Lengjubikarnum um síðustu helgi. Hann fór nýverið í myndatöku sem sýndi rifu í fremra krossbandi og slitið liðband.
Belginn bíður nú eftir niðurstöðum frá læknum sem meta hvort að hann þurfi að gangast undir aðgerð eða ekki. Ef hann þarf ekki að fara í aðgerð er reiknað með að hann verði frá í sex til tólf vikur.
Ef þörf verður á aðgerð má hins vegar gera ráð fyrir að hann missi af komandi tímabili í Lengjudeildinni.
Þessi tíðindi bæta gráu ofan á svart fyrir Njarðvíkinga en í sama leik varð Tómas Bjarki Jónsson, fyrirliði Njarðvíkur, fyrir því óláni að slíta krossband og verður hann frá allt tímabilið.
Athugasemdir




